![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
Valseðill

Inngangur
|
Verzlunarskóli Íslands leggur mikið kapp á að veita nemendum sínum bestu mögulegu þjónustu sem völ er á. Liður í því er að bjóða nemendum upp á nútíma stoðtæki við námið í formi rafræns námsefnis líkt og það sem sett er fram hér.
Verzlunarskólinn hefur nú um nokkurt skeið unnið að því að byggja upp námsefni til verslunarprófs og stúdentsprófs til notkunar í fjarnámi. Efnið er sérstaklega framleitt fyrir fjarnám og sett fram í formi texta, hlustunar, myndskeiða og gagnvirkra æfinga.
Auk þess að þjóna nemendum í fjarnámi allt árið um kring þá nýta hefðbundnir nemendum skólans sér þetta eins og ótakmarkaða aukatíma þar sem þeir þjálfa sig og kanna getu sína með æfingum og verkefnum sem skila niðurstöðum samstundis að verkefni loknu.
Ef þú hefur einhverjar spurningar, athugasemdir eða annað þá sendu þær á fjarnam@verslo.is. Okkur þætti gaman að heyra hvað þér finnst.
Gangi þér vel. |
|